Tólf nemendur verða brautskráðir frá skólanum laugardaginn 18. maí. Átta brautskrást af félags- og hugvísindabraut, tveir af náttúruvísindabraut, einn af listabraut og einn af starfsbraut. Áður hafa útskrifast fjórir nemendur frá skólanum.
Athöfnin fer fram í Ólafsfjarðarkirkju og hefst klukkan 11. Skólameistari og aðstoðarskólameistari taka til máls en ávarp nýstúdents flytur Harpa Hrönn Harðardóttir. Við athöfnina verða afhent verðlaun sem veitt eru fyrir framúrskarandi árangur í námi. Á eftir verður opið hús í skólanum og léttar veitingar. Nemendur, forráðamenn þeirra og aðrir velunnarar skólans eru hjartanlega velkomnir.