Bræðurnir Halldór Jón (Donni) og Konráð Freyr (Konni) Sigurðssynir hafa verið ráðnir þjálfarar meistaraflokks Tindastóls í karla og kvennaflokkum til næstu þriggja ára.
Donni hefur þjálfað lið meistaraflokks kvenna síðustu ár með góðum árangri og Konni hefur verið honum til aðstoðar síðustu keppnistímabil. Donni verður áfram aðalþjálfari kvennaliðsins og Konni honum til aðstoðar. Konni hefur verið í hlutverki leikmanns í karlaliði Tindastóls síðustu árin og mun á komandi keppnistímabili vera aðalþjálfari karlaliðsins.
Bræðurnir segjast spenntir fyrir áframhaldandi samstarfi og hafa eytt síðustu vikum í að ræða við leikmenn fyrir komandi keppnistímabil en bæði liðin eiga útileiki í Lengjubikarnum um næstu helgi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá knattspyrnudeild Tindastóls.