Skíðaiðkendur úr Fjallabyggð eru nú með foreldrum og forráða mönnum á Andrés önd mótinu í Hlíðarfjalli á Akureyri.  Börnin náðu frábærum árangri í gær í fjallinu. Nokkur náðu á pall á meðan aðrir unnu persónulega sigra og bættu sinn besta árangur. Mótinu lýkur svo 26. apríl.
Þau sem náðu í verðlaunasæti voru:
  • Marinó Örn 1.sæti svig
  • Mundína Ósk 1.sæti stórsvig
  • Díana Rut 2.sæti stórsvig
  • Jóhann Snær 2. sæti skíðaganga

Leikarnir hafa verið svo til árlegur viðburður í Hlíðarfjalli frá árinu 1976. Þetta er fjölmennasta skíðamót landsins með hátt í 1.000 keppendur á aldrinum 4. – 15. ára. Keppt er í alpagreinum, skíðagöngu og á snjóbrettum  og eiga fjölmargir skíðamenn ljúfar minningar frá leikum liðinna ára.

Myndir með frétt koma frá foreldrum barna og SSS.