Aðalfundur Knattspyrnufélags Fjallabyggðar sem haldinn var nýverið, hefur sent bæjaryfirvöldum Fjallabyggðar áskorun.
“Félagsmenn KF fagna eindregið að byggt verði knatthús á vallarstæði félagsins í Ólafsfirði, sem muni bæta æfingaraðstöðu félagsins til mikillar muna og vona að húsið verði tilbúið næsta vetur, einnig brýnir fundurinn við bæjarstjórn að viðhalda grasvellinum vel og hann verði sveitarfélaginu til sóma og geti nýst félaginu til æfinga og keppnisaðstöðu yfir sumartímann.”