Bókmenntakvöld verður haldið á Hótel Siglunesi í dag, laugardaginn 22. nóvember.  Fimm íslenskir rithöfundar sem gefa út nýjar bækur fyrir jólin mæta á svæðið og lesa upp úr bókum sínum.
Katrín Jakobsdóttir og Ragnar Jónasson lesa upp úr bókinni Franski spítalinn, Nína Ólafsdóttir les upp úr bókinni Þú sem ert á jörðu, Ragna Sigurðardóttir les upp úr Útreiðatúrnum og Þórunn Rakel Gylfadóttir lesa upp úr Mzungo.
Dagskráin hefst með fordrykk og upplestri kl. 18.30 þann 22. nóvember og í kjölfarið er boðið upp á þriggja rétta marokkóska veislu. Á milli rétta gefst tækifæri til að spyrja rithöfundana spjörunum úr.
Nánari upplýsingar um verð og skráningu á viðburði.