Senn líður að kosningum og við göngum til kosninga eins og sagt er. Oft er þetta brekka fyrir fólk, hvað á ég eiginlega að kjósa?
Þetta er svona eins og blindhæð í umferðinni, þú veist kannski ekki almennilega hvað er hinum megin við hæðina, en ert samt með nokkra hugmynd. Hvað eru þessir flokkar að fara að gera? Hverjir ætla að vinna saman? Hvernig tekst þeim að vinna saman?
Dagana fyrir kosningar eru svo einstaklingar að hnippa í þig og spyrja hvort þú ætlir ekki að kjósa rétt. Hver hefur ekki heyrt „kaustu rétt“? Hvað er rétt í þessu öllu saman?
Jú, það sem þú ákveður að kjósa, ekki það sem einhver sagði þér að kjósa, þannig þú kýst alltaf rétt.
Stefnuskrár flokkanna fara að birtast okkur núna og hefjumst við þá handa við að lesa þær og oft verðum við meira spurningamerki. Meirihlutinn segir þér hvað þau hafa gert frábæra hluti, hver hefur ekki heyrt það?
Margt hefur verið gert vel og margt má laga eins og gengur og gerist. En á sama tíma segja þau fólkinu sem er í óvissu við hvað skal setja X.
Þetta er allt saman nýtt fólk á listanum segir meirihlutinn til að reyna að sannfæra þig, hvort er það þá? Halda „frábæru“ hlutirnir áfram með nýju fólki meirihlutans eða er kominn tími til að leyfa öðrum að spreyta sig á þessu?
Ég er ekki alveg hlutlaus í þessum skrifum mínum, en mér finnst vera kominn tími á að H-listinn fái tækifæri.
Ein spurning hefur aðeins brunnið á fólki, hvað verður gert í bæjarstjóramálum? Verða þau enn gerð í hjáverkum samhliða öðru starfi innan bæjarskrifstofunnar?
Það er skýrt að við viljum ráða bæjarstjóra sem framkvæmdastjóra stjórnsýslunnar og það er markmið okkar að halda honum í starfi allt kjörtímabilið, því bæjarstjórnin veitir honum aðhald í hans verkum.
Ég skora á þig, kjósandi góður, að kynna þér stefnuskrár flokkanna og mynda þér skoðun. Mættu á kjörstað og nýttu kosningaréttinn þinn.
Höfundur: Guðlaugur Magnús Ingason, 5. sæti H-listans í Fjallabyggð.
