Blakfélag Fjallabyggðar fór með tvö lið á öldungamótið sem haldið var um helgina á Akureyri. BF var með eitt kvennalið og eitt karlalið í ár.
Mótið var mjög stórt og voru 110 kvennalið í 16 deildum og 53 karlalið í 8 deildum sem tóku þátt í ár.
Karlalið BF var í  2. sæti í sínum riðli. Erfiðara gekk hjá kvennaliðinu sem spiluðu í 3. deild, en liðið tapaði öllum sínum leikjum og féllu niður um eina deild.