Miðvikudaginn 5. nóvember kl. 18:00 hefst sala á Neyðarkalli ársins í Siglufirði hjá Björgunarsveitinni Strákum.
Að þessu sinni er Neyðarkall Landsbjargar straumvatnsbjörgunarmaður og með því heiðrum við minningu Sigurðar Kristófers McQuillan Óskarssonar, félaga í Landsbjörgu, sem lést af slysförum á síðasta ári.
Félagar í Björgunarsveitinni Strákum munu ganga í hús og um leið þakka þeir fyrir  frábærar móttökur undanfarin ár og vonast til að tekið verði vel á móti sölufólki þetta árið.
Neyðarkall kostar kr. 3.500.