Björgunarsveitin Strákar á Siglufirði sóttu í gærkvöldi vegfarendur úr þremur bílum sem komust ekki leiðar sinnar um Almenninga á Siglufjarðarvegi. Stórhríð og slæm færð var á svæðinu og voru bílarnir skildir eftir en fólkið flutt í bæinn á bílum sveitarinnar.

May be an image of útivist
Mynd: Bsv. Strákar.