Skagfirðingasveit á Sauðárkróki var kölluð út síðdegis í gær vegna 15 tonna línubáts sem átti við bilun í skrúfubúnaði að stríða á Skagafirði. Björgunarmenn fóru á staðinn á Zodiac bát sveitarinnar og voru til taks á meðan gerð var bráðabirgðaviðgerð á öxli línubátsins. Einnig var stærri bátur fenginn á staðinn ef draga þyrfti hann í land. Viðgerðin tókst þannig að hægt var að sigla bátnum í höfn á Hofsósi.

Þetta kemur fram á vef Landsbjargar.