Björgunarskipið Sigurvin frá Siglufirði fór á mesta forgangi í vikunni til að aðstoða togarann Ottó úr Vestmannaeyjum sem hafði sent neyðarboð. Skipið var alveg aflvana og rak í átt á landi. Áhöfnin á Sigurvini brást hratt við og voru komnir til hjálpar og komu skipinu örugglega til hafnar á Siglufirði.
Okkur barst þessar aðsendu myndir frá höfninni þegar Sigurvin var að draga skipið að landi.


