Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt að ráða Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur í starf sviðsstjóra velferðarsviðs, en fimm umsækjendur sóttu um starfið. Þá hefur einnig verið samþykkt að ráða Þórir Hákonarson í starf skrifstofustjóra Fjallabyggðar sem var einnig auglýst, en sex umsækjendur sóttu um starfið. Þórir hefur gegnt hlutverki bæjarstjóra undanfarna mánuði. Bjarkey starfaði áður sem kennari í Ólafsfirði og einnig fyrrverandi alþingismaður og matvælaráðherra.
Mögnum ráðningarþjónusta sá um umsóknarferli, mat á umsóknum og viðtöl og mæltu með þessum tveimur í störfin.
Það er svo hlutverk formanns bæjarráðs að ganga til samninga við báða aðila í störfin.