Bjarg íbúðafélag mun byggja 16 leiguíbúðir við Langamóa 1-3 í Móahverfi á Akureyri. Verktaki er BF byggingar ehf. Framkvæmdir hófust nú í apríl og er áætlað að íbúðirnar verði tilbúnar á tveimur mismunandi dagsetningum, í júlí 2026 og í nóvember 2026.

Íbúðirnar eru í tveimur húsum sem eru tvær hæðir, auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu. Þar má finna 2ja til 4ra herbergja íbúðir. Gæludýrahald er leyft í hluta íbúðanna.

Móahverfi er nýtt íbúðahverfi í norðvesturhluta Akureyrar. Gert ráð fyrir að Síðuskóli verði skóli hverfisins og er leikskóli fyrirhugaður sem staðsettur verður vestan Síðuskóla.

Bjarg íbúðafélag er húsnæðissjálfseignarstofnun stofnuð af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu.