Biskup Íslands auglýsti nýlega eftir presti til þjónustu í Ólafsfjarðarprestakalli. Ein umsókn barst og var hún frá sr. Stefaníu G. Steinsdóttur sem var tímabundið starfandi prestur í prestakallinu. Biskup Íslands hefur nú staðfest ráðninguna eins og við var að búast.

Sr. Stefanía Steinsdóttir er fædd þann 2. maí árið 1980. Hún er fædd og uppalin á Akureyri og varð stúdent frá Verkmenntaskólanum á Akureyri árið 2001.

Hún tók BS gráðu í líftækni og hóf þá masters nám í auðlindafræði í Háskólanum á Akureyri. Þá lauk hún BA gráðu í guðfræði árið 2015 og mag. theol. prófi frá Háskóla Íslands í júní árið 2017.

Sr. Stefanía var æskulýðsleiðtogi í Neskirkju árin 2015-2017 áður en hún vígðist til prestsþjónustu í Glerárprestakalli í ágúst árið 2017. Þá hefur hún verið í afleysingu í Akureyrarkirkju og nú síðast í Ólafsfjarðarkirkju.

Sr. Stefanía er í sambúð með Sólveigu Helgadóttur markþjálfa og eru börn Stefaníu fjögur Guðrún Linda, Hákon Valur, Andrea og Dagur Valur.