Fasteignasalan Hvammur auglýsir atvinnuhúsnæði á Siglufirði ásamt rekstri með vínveitingar, grill, snóker og sælgætisölu.
Um er að ræða 233,9 fm jarðhæð með gler viðbyggingu auk 36,5 fm stakstæð bygging sem er skráð geymsla hjá fmr. samtals 270,4 fm og 115,1 fm íbúð á annari hæð.
Íbúðin er með einu svefnherbergi en það er auðvelt að gera annað herbergi.
Rýmið sem reksturinn er í skiptist í tvo hluta, fyrst er komið inn í veitingasal og þar er borð og stólar fyrir 32 gesti og inn af honum er tómstundarými með tvö snoker borð, flatskjáir ( 3 st. ) spilakassar og píluspjöld. Inn af því er herbergi með sturtu og gufubaði og þar fyrir ofan er lítið herbergi.
Í eldhúsi er grillpanna, uppþvottavél, djúpsteikingarpottar, frystikista , pylsupottur, og fl. Lager er inn af eldhúsi og er gengið upp í íbúðina þar.
Atvinnuhúsnæði, íbúð, rekstur, lager og tæki seljast saman.
Á Siglufirði er mikill uppgangur og verið er að laga skíðasvæðið og byggja upp gólfvöll þannig að ferðamenska á bara eftir að aukast með tilheyrandi aukningu á eyðslu ferðamanna í verslun og þjónustu, því er þetta kjörið tækifæri til að eignast rekstur með húsnæði og íbúðarhúsnæði með lítilli útborgun.
Heimild: kaupa.is