Flugfélag Íslands hóf beint innanlandsflug milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrarflugvallar í dag, 24. febrúar,  í tengslum við millilandaflug í Keflavík.  Flogið verður allan ársins hring, allt að sex sinnum í viku yfir vetrartímann og tvisvar í viku yfir sumartímann.  Flugið er eingöngu ætlað þeim sem að eru á leið í og úr millilandaflugi í Keflavík og geta farþegar sem nýta sér þessa þjónustu því ferðast alla leið frá Akureyri til endanlegs áfangastaðar í Evrópu eða Norður-Ameríku.

Flug frá Akureyri
• Allir farþegar bókaðir í áframhaldandi flug með Icelandair eru innritaðir alla leið til áfangastaðar erlendis.
• Farþegar með öðrum flugfélögum eru innritaðir í flugið til Keflavíkur en brottfararspjald í áframhaldandi flug er hægt að nálgast á þjónustuborði viðkomandi flugfélags í Keflavík (á brottfararsvæði) eða eftir öðrum þeim leiðum sem viðkomandi flugfélag bíður upp á s.s. netinnritun, farsímainnritun eða sjálfsafgreiðslustöð.
• Farþegi fer í flugverndarskimun á Akureyri.
• Farangur er innritaður á Akureyri í áframhaldandi flug frá Keflavík.

Flug til Akureyrar

Bókað í einum flugmiða með Icelandair
• Farþegi er innritaður áfram til Akureyrar á flugvelli erlendis.
• Farþegi fær afhent brottfararspjald frá Keflavík til Akureyrar á flugvelli erlendis.
• Töskur eru innritaðar alla leið til Akureyrar.

Bókað í aðskildum flugmiðum með Icelandair og Flugfélagi Íslands
• Farþegi þarf að taka fram á flugvelli þar sem hann innritar sig að loka áfangastaður sé Akureyri.
• Starfsmaður á flugvelli erlendis innritar töskuna alla leið til Akureyrar skv. beiðni farþega.
• Farþegi fær afhent brottfararspjald Keflavík-Akureyri.
• Ef ekki er unnt að afhenda brottfararspjald Keflavík-Akureyri, þá afhendist það á þjónustuborði í Keflavík.

Bókað í aðskildum flugmiðum með Flugfélagi Íslands og öðrum flugfélögum en Icelandair
• Farþegi innritar sig og farangur til Keflavíkur.
• Farþegi fer í komusal (arrivals) í Keflavík og sækir farangur á færiband.
• Innritunarborð IGS er staðsett í komusal á Keflavíkurflugvelli fyrir þetta flug.
• Farþegi innritar sig og farangur á innritunarborði IGS staðsettu í komusal.
• Farþegi fer í flugverndarskimun sem er staðsett í komusal á Keflavíkurflugvelli.
• Eftir flugverndarskimun fer farþegi aftur inn á fríhafnarsvæði flugstöðvar.

Mikilvægar upplýsingar
Ef farþegi fer út af tollsvæði (út úr komusal) í Keflavík, þá getur hann ekki farið í þetta flug.
Flugfélag Íslands ráðleggur farþegum sem þurfa að nálgast farangur í komusal að gefa sér að lágmarki 90 mínútur á milli fluga.

Upplýsingar um fríhafnarverslun
Flug frá Akureyri
• Fríhafnarverslun er til staðar á Akureyri.

Flug til Akureyrar
• Tollafgreiðsla fer fram á Akureyri og fríhafnarverslun verður opin við komu til Akureyrar.