Á heimasíðu Síldarminjasafni Íslands er greint frá því að Hjalti Hafþórsson hafi lokið við smíði á báti sínum sem hann hófst handa við um mitt sumar. Hjalti hafði vinnuaðstöðu í Slippnum á Siglufirði og eyddi þar tæpum 500 klst. við smíði, að eigin sögn. Laugardaginn 13. október sl. var báturinn sjósettur á Siglufirði og Hjalti reri honum í logni og sólskini.

Sjáið glæsilegar myndir hér.