Á heimasíðu Síldarminjasafnsins má lesa að bátssmíðin hjá Hjalta Hafþórssyni í Slippnum þokist áfram og að staða verkefnisins eftir áætlun eða rétt um það bil hálfnað.

Báturinn hefur fengið sína réttu lögun og eru þeir feðgar Hjalti og Hafþór nú að vinna að innanborðs-smíðinni, böndum, þóftum, kefum og árum. Báturinn hefur sem sé fengið á sig sannfærandi “landnámslögun” og er mjög áhugavert að  heimsækja Slippinn og fylgjast með framvindu verksins. Hvatt er til að bæjarbúar Fjallabyggðar og ferðamenn heimsæki staðinn.

Heimild: www.sild.is / Örlygur K.

Ljósmynd frá www.sild.is