Vakin er athygli á því að talsvert hefur snjóað nyrst á Tröllaskaga í dag og í gær. Samkvæmt veðurspá má vænta þess að snjóa muni áfram næstu daga á þessu svæði, þá sérstaklega á Siglufirði og Ólafsfirði.
Mat Veðurstofunnar er það að snjóflóðahætta sé á stigi 3 , sem þýðir að snjóþekjan sé almennt stöðug en í einstaka bröttum brekkum er stöðuleikinn minni.
Af því tilefni þá hafa verið sett upp skilti við varnargarðinn á Siglufirði sem banna göngu á og við hann. Íbúar og gestir eru hvattir til að virða þessa lokun og fylgjast jafnframt með úrkomuþróuninni næstu daga.