Knattspyrnufélag Fjallabyggðar hefur samið við Nathan Yared og fær hann leikheimild frá og með 31. júlí. Hann er sagður vera miðjumaður og framherji sem kemur úr háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Hann er fæddur í Springfield árið 2003 og lærði upplýsingatækni í Shenandoah háskólanum í Virginia fylkinu.

Vonandi að hann geti hjálpað liðinu út leiktíðina og komið með ferska vinda með sér.