Bæjarráð Fjallabyggðar segist harma mjög að grípa hafi þurft til uppsagna hjá fyrirtækjunum Siglunesi og Nesi, en í gær var öllu starfsfólki þar sagt að því yrði sagt upp um næstu mánaðamót. Í yfirlýsingu bæjarráðs segir að uppsagnirnar hafi mikil áhrif á svæðinu, verði þær að veruleika. Tapist 35 störf í Fjallabyggð hefði það sömu áhrif fyrir atvinnusvæðið og að 3.500 störf töpuðust á höfuðborgarsvæðinu.

 Framkvæmdastjóri fyrirtækjanna sagði í hádegisfréttum Rúv búast við að einhverjir yrðu endurráðnir, þó ekki allir.

Heimild: ruv.is