KA hefur óskað eftir því að Akureyrarbær flýti framkvæmdum við væntanlegan gervigrasvöll á félagssvæði KA um eitt ár þannig að vinna við jarðvegsframkvæmdir hefjist í haust og völlurinn lagður gervigrasi vorið 2012.
Fulltrúar KA þau Hrefna G. Torfadóttir formaður og Gunnar Jónsson framkvæmdastjóri mættu á fund bæjarráðs Akureyrar og fóru yfir málið.
Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt að taka upp viðræður um endurskoðun á uppbyggingarsamningi við Knattspyrnufélag Akureyrar frá árinu 2007.
Bæjarráð Akureyrar tilnefnir Geir Kristinn Aðalsteinsson L-lista í viðræðuhópinn og óskar eftir tilnefningu 2ja fulltrúa íþróttaráðs. Með hópnum munu starfa bæjarstjóri Akureyrar og framkvæmdastjóri íþróttadeildar.