Þessa vikuna stendur yfir sýning listakonunnar Jonnu Sigurðardóttur í anddyri Ráðhússins á Akureyri. Jonna, sem er bæjarlistamaður Akureyrar 2024, ferðast um bæinn með sex ferðatöskur, en hver taska birtist á nýjum stað í viku í senn.
Verkið Frú Elísabet er til sýnis í Ráðhúsinu og er unnið úr nælonsokkabuxum og útsaumsgarni sem fullorðin kona gaf listakonunni.
Sýningin Ferðlag mun birtast á ólíkum stöðum næstu vikurnar.