Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar hefur auglýst eftir umsóknum og/eða rökstuddum ábendingum um bæjarlistamann Fjallabyggðar 2014. Nafnbótin bæjarlistamaður getur hlotnast einstökum listamanni eða hópi.

Styrkur til bæjarlistamanns Fjallabyggðar 2014 nemur kr. 150.000 til einstaklings og kr. 250.000 til hóps.

Umsóknir eða ábendingar skulu berast til sveitarfélagsins í síðasta lagi sunnudaginn 5. janúar 2014, með bréfi eða í tölvupósti á fjallabyggd@fjallabyggd.is