Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, staðsetur skrifstofu sína í Fjallabyggð í dag og á morgun.
Skrifstofa ráðherra verður staðsett á Siglufirði hluta dags í dag 28. mars og á miðvikudag 29. mars. Í þetta skiptið fara þeim fram milli kl. 15 og 16 í Regus á Siglufirði, Túngötu 3, 2. hæð.
Á hverri starfsstöð eru öll áhugasöm velkomin á opna viðtalsíma. Á opnum viðtalstímum gefst tækifæri til að eiga stutt, milliliðalaust spjall við ráðherra um málefni sem undir ráðuneytið heyra, t.d. koma með ábendingar um þau eða viðra hugmyndir. Þá eru fyrirtækjaheimsóknir einnig hluti af dagskrá ráðherra auk þess sem hún sinnir hefðbundnum störfum í fjarvinnu.