Að vanda verða áramótabrennur og flugeldasýningar í Fjallabyggð á gamlársdag. Á Siglufirði verður áramótabrenna sunnan við Rarik kl. 20:30 og kl. 21:00 hefst flugeldasýning sem Björgunarsveitin Strákar stjórna. Í Ólafsfirði verður áramótabrenna við Ósbrekkusand kl. 20:00 og flugeldasýning kl. 20:30 sem Björgunarsveitin Tindur stjórnar.