Áramótabrennu Húsvíkinga hefur verið frestað vegna veðurs að sögn brennustjóra. Einnig hefur gamlárshlaupi Húsvíkinga verið frestað af sömu ástæðu.
Kveikja átti í áramótabrennu bæjarins kl. 16:30 á gamlársdag en staðsetning hans er í Breiðulág (milli Stakkholts og Brúnagerðis).
Reiknað er með að verulega dragi úr flugeldasölu á þessu svæði, en hægt er að styrkja björgunarsveitina Garðar á Húsavík með beinum framlögum á eftirfarandi reikning:
kt: 600281-0469 banki 0567 26 11042