Útlit er fyrir sviptingar í veðrinu nú í vikunni á Norðurlandi.  Á Norðurlandi eystra er gul viðvörun í gildi frá kl. 11:00 mánudaginn 3.2.2025 og til kl. 19:00 sama dag en þá tekur appelsínugul viðvörun við og stendur til kl. 03:00 aðfararnótt þriðjudagsins 4.2.2025.
Meðan gula viðvörunin gildir er gert ráð fyrir sunnan 15-23 m/s og hlýindum þannig að aðstæður geta orðið viðsjárverðar á vegum, sérstaklega þar sem er hálka. Þegar appelsínugula viðvörunin tekur við er gert ráð fyrir vestan 20-30 m/s ásamt snjókomu á köflum og lélegu skyggni.
Sem sagt stórhríðarveður og þar af leiðandi ekkert ferðaveður og má jafnvel búast við staðbundnu foktjóni. Það verður svo stund á milli stríða í veðrinu fram á seinnipart miðvikudags en þá tekur gul viðvörun við að nýju vegna sunnan hvassviðris með vindi upp á 20-30 m/s.