Í gærkvöld var íþróttarfólki í Fjallabyggð veittar viðurkenningar og íþróttamaður Fjallabyggðar árið 2025 var kynntur. Í blakinu voru nokkrar viðurkenningar veittar.
Anna Brynja Agnarsdóttir var blakari ársins, Eiríkur Hrafn Baldvinsson var valinn ungur og efnilegur blakari og Hanna María Sigurgeirsdóttir var valin ung og efnileg blakkona.
Einnig voru veitt sérstök íþróttaverðlaun en þau verðlaun eru veitt fyrir einstakling sem hefur æft og keppt fyrir barna- og unglingastarf í Fjallabyggð og farið svo í annað félag og gert góða hluti. Þau verðlaun fékk blakkonan Ísabella Ósk Stefánsdóttir.
