Á milli 2000-2500 manns hafa verið á Akureyri frá því á miðvikudag vegna Andrésar Andar leikanna sem lýkur í dag. Meðal keppnis greina eru: svig, stórsvig, skíðaganga, bretti og leikjabraut. Um 700 keppendur taka þátt í ár en mótið er 40 ára um þessar mundir.

