Út er komin BS lokaritgerð úr Umhverfisdeild Landbúnaðarháskóla Íslands sem ber nafnið “Malarvöllurinn á Siglufirði“ eftir Írisi Stefánsdóttur fædda árið 1985. Leiðbeinandi Írisar var Birkir Einarsson. Ritgerðin var gefin út í maí 2012, en var opinberuð á netinu í október 2012.
Þetta er mjög áhugaverð ritgerð sem vert er að lesa. Ritgerðin er 33 blaðsíður og 92 mb í niðurhali, það getur því tekið smá tíma að sækja hana fyrir þá sem hafa hægar tengingar.
Um ritgerðina:
Markmið þessa verkefnis er að hanna fallegan almenningsgarð á ónotuðu svæði sem er um 1 ha að stærð, í hjarta Siglufjarðar. Með tímanum hefur starfsemi þessa svæðis sem áður var fótboltavöllur Knattspyrnufélags Siglufjarðar, lagst niður og er svæðið lítið sem ekkert nýtt í dag. Samhliða verður skoðuð uppbygging íbúðarhúsnæðis á svæðinu og hvernig það getur styrkt fyrirhugaðan almenningsgarð. Ýmis gögn voru notuð til að kynnast sögu staðarins og hvers vegna hann er eins og hann er. Greiningar eru notaðar til að sjá hvað ber að hafa í huga í hönnun vallarins en þær voru svo teknar saman og notaðar áfram í niðurstöðum og hönnunartillögu sem er lögð fram í síðasta hluta verkefnisins.
Heimild: http://hdl.handle.net/1946/13238