Tillaga að vinnuferli við gerð fjárhagsáætlunar var samþykkt af bæjarráði Fjallabyggaðar og með greinargerð og starfsáætlunum sem unnar voru af deildarstjórum bæjarfélagsins eftir umræður í fagnefndum.
Vinnuferlið greinir frá verklagi starfsmanna og kjörinna fulltrúa við undirbúning að tillögu að fjárhagsáætlun Fjallabyggðar fyrir árið 2013. Í upphafi áætlunargerðar voru settir rammar að fjárhagsáætlun næsta árs fyrir hvern málaflokk og deildir.
Náið samráð deildarstjóra var haft við aðalbókara, launafulltrúa, skrifstofu- og fjármálastjóra, bæjarstjóra og endurskoðanda við gerð tillagna til fjárhagsáætlunar og við undirbúning.
Í fyrstu drögum að frumvarpi til fjárhagsáætlunar, vinnuplani sem var til umræðu í bæjarráði Fjallabyggðar 18.10.2011  var farið yfir forsendur að fjárhagsáætlun og þær samþykktar.
Fjárhagsramma og forsendum var svo samþykktum vísað til umfjöllunar í fagnefndum.
Deildarstjórum var ætlað að vinna náið með sínum fagnefndum en einstakar tillögur voru settar fram til umræðu og yfirferðar í bæjarráði.
Ljóst er að nokkrar breytingar verða á starfsmannahaldi bæjarfélagsins á árinu 2013 en gert er ráð fyrir að heildarúttekt fari fram á stjórnsýslu  á árinu 2013 og þar með á rekstri bæjarfélagsins.
Rétt er að minna á að deildarstjórum er heimilt að lækka starfshlutfall einstakra starfsmanna að höfðu samráði við fagnefndir.