Allt viðbragðslið Slökkviliðs Norðurþings barðist við eld uppi í fjalli við Húsavík í gærkvöldi. Voru íbúar beðnir um að halda aftur að sér í meðferð flugelda á meðan verið var að ná tökum á eldinum. Miklir eldar loguðu í gróðri í fjallshlíðinni ofan Húsavíkur, sennilega af völdum neyðarblyss, fallhlífarflugelds.
Jörð var alveg auð og gróður skraufa þurr. Þeir sem áttu hina öflugu rauðu neyðarflugelda, fallhlífasólir sem svífa lengi á himni, með rauðu björtu ljósi, voru beðnir um að nota þessi blys ekki í gærkvöldi.