Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt að fara í hreinsun á svæðinu við fiskhjallana í Ólafsfirði með það í huga að halda eftir parti af hjalli sem minjum og í framhaldi verði gerð áætlun um byggingu eins fiskihjalls. Lögð verður fram áætlun um kostnað og framkvæmd verksins til bæjarráðs Fjallabyggðar.
Um er að ræða varðveislu söguminja við fiskhjallana er standa í Kleifarhorni og við Ósbrekkusandinn í Ólafsfirði.
Einnig verði sótt um styrk til Framkvæmdasjóðs Ferðamannastaða vegna uppbyggingarinnar.