Fjallabyggð hefur hugmyndir um að áfangaskipta framkvæmdum sem fyrirhugaðar eru á tjaldsvæðinu í Ólafsfirði í samráði við rekstraraðila svæðisins. Tjaldsvæðið hefur gengið illa að losa vatn í gegnum jarðveginn þegar blautir dagar eru. Ekki kemur fram hvaða hugmyndir af framkvæmdum Fjallabyggð hefur í huga, en ljóst er að framkvæmdir eru fyrirhugaðar á svæðinu, en tímasetning liggur ekki fyrir.