Aðventuhátíð verður í Ólafsfjarðarkirkju sunnudaginn 7. desember kl. 17:00. Júlía Birna Birgisdóttir flytur hugleiðingu, fermingarbörn bera inn ljósið og annast ritningarlestur.
Kórsöngur frá Kór Ólafsfjarðarkirkju og Kór Siglufjarðarkirkju. Stjórnandi er Ave Kara Sillaots.
Einsöngur: Alda Máney, Jenný Hjaltadóttir, Margrét Ólöf, Sunna Eir og Þorsteinn Bjarnason.
Séra Sigurður Ægisson og séra Stefanía Steinsdóttir annast aðventustundina.