Er umhverfisslys í uppsiglingu í Siglufirði í boði bæjarfulltrúa Sjálfstæðismanna? 

Undirritaður var staddur í Reykjavík um hátíðirnar og átti þess vegna kost á að skoða mikið umhverfisslys í Mjóddinni í boði vinstri manna í borgarstjórn Reykjavíkur. Þar er risin skemma sem er eins og skrímsli í íbúðar- og íþróttamannvirkja byggð. Lesendur hafa eflaust séð þetta í fréttum. 

Hvað er að ske hjá okkur í Siglufirði! 

Hjá Umhverfis- og skipulagsnefnd Fjallabyggðar liggur fyrir beiðni um að reisa verslunarmiðstöð í nafni Samkaupa, sem m.a. rekur Kjörbúðina hér í Siglufirði, á dýrmætustu lóð bæjarins, í gömlum sveitarbæjar stíl. Á kynningarfundi, haldinn í Ráðhúsi Fjallabyggðar, í boði bæjarstjórnar, þar sem hönnuðir lýstu þeirri uppljómun sem þeir urðu fyrir þegar þeir sáu háu og bröttu þökin á húsum Síldarminjasafnins. 

En fellur þessi tillaga að næsta umhverfi miðbæjarins? Ef þú ágæti lesandi stendur t.d. á torginu og horfir í suður, í átt að því svæði sem þessi bygging er fyrirhuguð, og  ímyndar þér að byggingin væri risin, hvað sérð þú í þeirri mynd að þessi fyrirhuguð bygging eigi sameiginlegt með næsta umhverfi annað en loka á fallegu endurbyggðu verbúðirnar/veitingahús. Í sjónlínu er einnig eitt glæsilegasta hótel landsins, Sigló hótel. 

 

Það hefði átt að vera lágmarkskrafa umhverfis- og skipulagssviðs, f.h. okkar bæjarbúa áður en fyrrnefndur fundur var haldinn, að hönnuðir skiluð inn líkani þar sem íbúar gætu áttað sig á hvernig fyrirhuguð bygging fellur að næsta umhverfi t.d. aðkomu að veitingahúsum og þá upplifum gesta sem verður þegar horft er úr veitingasal í vestur á bárujárnsklæddan vegg. Það er ekki nema lítill hluti íbúa sem gerir sér grein fyrir því hvernig þessi fyrirhuguð bygging fellur að umhverfinu og hve mikið byggingamagn þarna er fyrirhugað. 

Þegar húsnæði sem Egilssíldar var starfrækt við Gránugötu var rifið, opnaðist nýr miðbær og ný uppgerðar verbúðir/veitingahús fengu að njóta sýn.

Við Siglfirðingar, íbúar Fjallabyggðar, eigum sannarlega þá von í brjósti að hér rísi verslun með gott aðgengi og þá eru til staðir innan sveitarfélagsins sem geta vel þjónað þeim tilgangi en þessi staðsetning fyrir vestan Torgið (Hannes boy) og Bláa húsið er ekki staður fyrir verslunarmiðstöð eða nokkur annan rekstur. Stöndum vörð um þann einstaka miðbæ sem við eigum. 

Ég vil að lokum vona að fulltrúar Sjálfstæðismanna í Fjallabyggð setji ekki nafn sitt við það mikla umhverfisslys sem verður ef þessar byggingaframkvæmdir verða leyfðar. Hvernig datt bæjarfulltrúum í hug, á sínum tíma, að ljá máls á því að svona bygging gæti risið þá þessu stað? 

Með nýárskveðju ,

Konráð Karl Baldvinsson.

Texti: Aðsent efni til birtingar á Hedinsfjordur.is