Óvanalega fáar eignir eru nú til sölu í Ólafsfirði í póstnúmeri 625. Sex eignir eru nú til sölu samkvæmt fasteignavef mbl.is og eitt fyrirtæki. Þá hafa verið gerðir 9 kaupsamningar frá 1. janúar til 14. apríl 2024, og því verið töluverð sala á eignum í vor.
Við Aðalgötuna eru tvær eignir til sölu, þrjár við Hlíðarveg og ein við Brekkugötu. Eignirnar eru fjölbreyttar, en ekki er mikið úrval af litlum 2-3 herbergja íbúðum. Betra úrval er núna af stærri eignum í Ólafsfirði.
Fyrirtækið og atvinnuhúsnæðið Betri vörur er til sölu en þar er óskað eftir tilboði í eignina.