í dag, sunnudaginn 12. maí hefjast framkvæmdir við síðasta áfanga í endurnýjun Aðalgötu á Siglufirði og jafnframt fyrsta áfanga í nýju skipulagi miðbæjarins. Framkvæmdin felur í sér lagningu nýrra lagna í götu, nýja hellulögn á gangstéttar og bílastæði, uppsetningu nýrra ljósastaura og nýtt malbik á götu. Öll hönnun og frágangur svæðisins miðast við að gera vistgötunni góð skil þar sem umferð gangandi og hægfara faratækja, eins og reiðhjóla, hjólaskauta eða hjólabretta, hefur forgang fram yfir umferð bíla.

Framkvæmdaraðili er Sölvi Sölvason.

Framkvæmdir eru afmarkaðar frá gatnamótum Túngötu/Aðalgötu að gatnamótum Aðalgötu/Grundargötu.

Ljóst er að óhjákvæmilegt rask verður á svæðinu á meðan á framkvæmdum stendur en framkvæmdinni verði skipt upp í tvo áfanga þar sem unnið verði á helmingi svæðisins í einu til að valda sem minnstum óþægindum fyrir rekstraraðila á svæðinu.

Fyrri hluti verksins sem hefst í dag og nær frá horni Aðalgötu/Grundargötu og að horni Aðalgötu/Lækjargötu. Þessum hluta verður þá lokað fyrir bílaumferð en hægt verður að ganga norðanmegin götu fyrst um sinn.