Aðalfundur TBS fer fram fimmtudaginn 8.júní í kaffiteríunni í íþróttahúsinu á Siglufirði og hefst kl 18:00. Fundarstaður auglýstur með fyrirvara um verkfall.
Leitað er eftir nýjum aðilum í stjórn félagsins en þrír af fimm stjórnarmönnum hafa óskað eftir að stíga til hliðar. Þeir sem hafa áhuga á að koma formlega að starfi félagsins með stjórnarsetu eru hvattir til að láta vita af því og hafa samband. Félagar, foreldrar og áhugafólk um félagið er hvatt til að mæta á fundinn.
Á meðan á fundi stendur verður íþróttasalurinn aðgengilegur fyrir iðkendur félagsins til að spila og leika sér í badminton.
Dagskrá fundarins:
- Venjuleg aðalfundarstörf
- Lagabreytingar
- Önnur mál
Fyrir fundinn liggja fyrir örfáar lagabreytingar. Engin þeirra er efnisleg breyting á lögunum heldur eru þetta orðalagsbreytingar og/eða skýrara orðalag á ákveðnum atriðum í lögunum. Ef félagar vilja fá tillögurnar fyrir fundinn er hægt að óska eftir því.
Undir liðnum önnur mál verður m.a. rætt um fyrirhugaða keppnisferð erlendis hjá elsta hópnum í haust (2023).