Aðalfundur Knattspyrnufélags Fjallabyggðar verður haldinn mánudaginn 20. apríl kl. 20:00, í Ráðhúsi Fjallabyggðar. Nýja aðila vantar í stjórn félagsins og er fólk hvatt til að mæta á fundinn.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, kosning stjórnar, ársreikningur, skýrsla stjórnar og önnur mál.