Í nóvember síðastliðinn auglýsti Dalvíkurbyggð lausar til umsóknar tvær spennandi stöður á Eigna- og framkvæmdadeild.
Annars vegar deildarstjórastöðu og hins vegar stöðu starfsmanns hjá deildinni. Frá þessu var fyrst greint á vef Dalvíkurbyggðar.
Alls bárust 7 umsóknir um stöðu deildarstjóra og 4 umsóknir um stöðu starfsmanns.
Umsækjendur í deildarstjórastöðu:
| Ásdís Sigurðardóttir | Forstöðumaður |
| Eyþór Gunnarsson | Sérfræðingur |
| Helga Íris Ingólfsdóttir | Skipulags- og tæknifulltrúi |
| Margrét Víkingsdóttir | Viðskiptafræðingur |
| Ólafur Pálmi Agnarsson | Verktaki |
| Sigvaldi Gunnlaugsson | Vélvirki |
| Svanhvít Pétursdóttir | Hópstjóri |
Umsækjendur í stöðu starfsmanns:
| Arnar Már Rúnarsson | Rafvirki |
| Kristján Guðmundsson | Starfsmaður Eigna- og framkvæmdadeildar |
| Haukur Guðjónsson | Húsasmiður/Flokkstjóri |
| Ólafur Pálmi Agnarsson | Verktaki |
Heimild: dalvik.is
