Nú eru Bíladagarnir á Akureyri liðnir hjá og án stórra áfalla þrátt fyrir miklar annir hjá lögreglunni á Akureyri. Shell-Bíladagar á vegum Bílaklúbbs Akureyrar hófust þann 13.06 og enduðu þann 17.06.2014.
Í tilkynningu frá Lögreglunni á Akureyri kemur fram að á þessu tímabili hafi 64 ökumenn verið kærðir fyrir alls 81 brot á umferðarlögum. Þar af voru 28 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók innanbæjar mældist á 107 km/klst þar sem hámarkshraði er 50 km/klst. Sá ökumaður var sviptur ökuréttindum á staðnum en við þessu broti liggur 3 mánaða svipting og 90.0000 kr sekt. Sá sem hraðast ók utanbæjar mældist á 141 km/klst hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90km/klst.
Fimm ökumenn voru grunaðir um ölvun við akstur. Þrír ökumenn voru grunaðir um að aka undir áhrifum fíkniefna. Tveir ökumenn voru kærðir fyrir að keyra án ökuréttinda. Ellefu umferðaróhöpp urðu um bíladaga, flest minniháttar en þó tvö þar sem alvarlegt eignatjón varð og var slys í öðru þeirra. Fimm fíkniefnamál komu við sögu lögreglunnar, fjögur minniháttar en í einu er grunur um sölu fíkniefna og var lagt hald á í því máli um 80 gr af fíkniefnum.