Fjallabyggð býður upp á tvo smíðavelli í sumar, á Siglufirði og í Ólafsfirði. Eins og undanfarin ár þá er þetta mjög vinsælt og er ætlað börnum 1-4 bekk en eldri börn eru líka velkomin, enda vinsælt að koma og smíða kofa.

Á Siglufirði voru 49 börn mætt á svæðið í morgun. Það voru foreldrar barna í Skíðafélagi Siglufjarðar sem stóðu vaktina á Siglufirði í morgun og veittu aðstoð.

Smíðavellir voru á hverju horni á höfuðborgarsvæðinu fyrir 30 árum en það ásamt skólagörðum er að mestu horfið. Þetta var afar vinsælt starf og kostaði ekkert að vera byggja kofa allan daginn.
Frábært að þetta sé í boði á landsbyggðinni ennþá.
Sandra Finnsdóttir tók myndirnar sem fylgja fréttinni.