Norðurlandsmótaröðin var haldin í Ólafsfirði í gær á Skeggjabrekkuvelli Golfklúbbs Fjallabyggðar. Var þetta þriðja mótið í ár, en fyrsta mótið var haldið í Hlíðarendavelli við Sauðárkrók og svo á Arnarholtsvelli við Dalvík.

Alls spiluðu 44 þátttakendur á mótinu í Ólafsfirði í gær, en mótið er fyrir 21 árs og yngri. Nánari úrslit má finna á meðfylgjandi myndum.

13626362_1158717397514029_883362641944173099_n 13781839_1158717350847367_6402609459843981434_n