Horfur eru á að rúmlega 30 manns missi vinnu á Dalvík vegna gjaldþrots fiskvinnslunnar Norðurstrandar. Guðmundur St. Jónsson framkvæmdastjóri Norðurstrandar segir í Morgunblaðinu í dag að beiðni Norðurstrandar um gjaldþrot verði tekin fyrir á fimmtudaginn Héraðsdómi Norðurlands eystra.
Í þrjá mánuði hafi verið unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins en niðurstaðan hafi orðið þessi. Starfsfólkinu var tilkynnt fyrir helgi að Norðurströnd færi að öllum líkindum í gjaldþrot. Vinnsla hjá Norðurströnd hefur legið niðri undanfarna mánuði. Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri á Dalvík segir alvarlegt þegar svo stórt fyrirtæki hættir starfsemi, bæði atvinnumissirinn og áhrifin á líðan fólks í bænum.
Heimild: ruv.is