Sameiginlegt lið KF/Tindastóls tapaði í dag gegn liði KA í 3. flokki karla í knattspyrnu á Sauðárkróksvelli. Staðan í hálfleik var 1-1 en lokatölur urðu 1-4 fyrir KA sem skoruðu þrjú mörk í síðari hálfleik.

Mark KF/Tindastóls skoraði Óli Björn Pétursson á 26. mínútu en fyrsta mark KA kom á 11. mínútu. Næsti leikur 3. flokks fer fram á Siglufjarðarvelli 2.  september kl. 13 gegn ÍR.

Leikskýrslu KSÍ má lesa hér.