Sameiginlegt lið KF og Dalvíkur sameinast um lið í 3. flokki karla á Íslandsmótinu eins og undanfarin ár. Liðið keppir í D-riðli ásamt FH, Tindastól, Val, Víkingum, Stjörnunni, Fram og Leikni. Nokkur lið eru einnig að sameinast með lið eins og KF/Dalvík.
Í liði KF/Dalvík eru nokkrir strákar sem hafa leikið sína fyrstu meistaraflokks leiki og fengið þar dýrmæta reynslu. Lið hefur nú leikið 5 leiki, gert tvö jafntefli og tapað þremur. Liðið leikur sína heimaleiki öllu jafnan á gervigrasinu á Dalvík.
Fyrsti leikurinn var 1. mars gegn Stjörnunni og tapaðist leikurinn 1-3 en mark KF/Dalvík gerði Patrekur Ingvason úr víti í síðari hálfleik.
Þann 8. mars var leikur gegn Val þar sem allt var í járnum og endaði leikurinn 0-0 og fengu bæði lið eitt stig.
Næsti leikur var gegn Fram þann 15. mars. KF/Dalvík byrjaði leikinn vel og komst í 2-0 í fyrri hálfleik eftir mörk frá Patreki Ingvasyni. Fram skoraði tvö mörk í síðari hálfleik og endaði leikurinn því 2-2 eftir mikla baráttu.
Liðið spilaði svo útileik 5. apríl gegn FH sem tapaðist stórt, 8-0. Strax daginn eftir var erfiður leikur gegn Víkingum, sem tapaðist 5-0.