Umsóknarfresti um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar lauk 28. júní síðastliðinn. Alls sóttu 22 aðilar um starfið, en ráðningastofan Intellecta var fengin til að sjá um að auglýsa starfið. Mikið var um góðar umsóknir að mati bæjarráðs Fjallabyggðar, og er næsta skref að bjóða umsækjendum í viðtal.
Til stendur að birta lista yfir umsækjendur.