Fjöldi eigna er nú til sölu á Siglufirði, en alls eru 18 einbýlishús núna á skrá miðað við upplýsingar á fasteignavef mbl.is. Ódýrasta húsið er 19 fm hús við Aðalgötu 22 og er ásett verð þar 15 milljónir. Stærsta og dýrasta húsið er við Norðurtún en þar er glæsilegt einbýli á tveimur hæðum, alls 246 fm, en þar er ásett verð 73,9 milljónir.

Einnig er mjög gott úrval af fjölbýlishúsum og hæðum, en minna af raðhúsum og parhúsum. Alls eru 48 íbúðaeignir til sölu á Siglufirði eins og staðan er núna, þar af nokkrar nýbyggðar eignir við Vallarbraut.